Fréttir
Gluggar og Gler deildinni frestað fram á föstudag
Vegna mjög slæmrar veðurspár hefur nefnd Áhugamannadeildar Spretts tekið þá ákvörðun að fresta Furuflísarfjórganginum til morguns, föstudagsins 5. febrúar.Nefndin ráðfærði sig við veðurfræðinga og aðra sérfræðinga sem sögðu veðurútlitð vera mjög slæmt í kvöld. Versta veðrið á að vera á höfuðborgarsvæðinu mlli 18-20 og leiðir til höfuðborgarinnar munu lokast í hádeginu í dag skv. Vegagerðinni.Við hvetjum alla til að mæta á föstudaginn í Sprettshöllina, njóta og horfa á spennandi keppni.Húsið opnar kl. 16:00, opnunarhátíðin kl. 17:20 og keppnin sjálf byrjar kl. 18:00Við minnum svo á fésbókarsíðuna og snapchat deildarinnar. Endilega smellið like á viðburðin og bætið svo Áhugamannadeildinni sem vini á snappinu.Hlökkum til að sjá ykkur öll.