893 3600
ahugamannadeild@sprettarar.is
Áhugamannadeild Equsana og Spretts árið 2022
Undirbúningur er í fullum gangi fyrir áttunda keppnisárið í Áhugamannadeild Spretts.
Mótaröðin 2022 verður með svipuð fyrirkomulagi og í ár en ákveðið hefur verið að bæta við gæðingaskeiði.
Þannig að keppnisgreinar ársins eru fjórgangur, fimmgangur, slaktaumatölt, gæðingaskeið og tölt.
Í 3 af 5 greinum hafa liðin val um að senda alla sína knapa til keppni en þrír efstu telja til stiga.
Umsóknarfrestur fyrir ný lið rennur út á miðnætti 30. september, svo nú er um að gera að hafa hraðar hendur og finna 5 knapa og stofna nýtt lið og koma sterk inn í keppni deildarinnar fyrir árið 2022
Netfang fyrir nýjar umsóknir er This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Meðfylgjandi hér að neðan eru reglur deildarinnar fyrir árið 2022
Leikreglur Áhugamannadeildar Spretts 2022
1 Áhugamannadeildin
1.1 Áhugamannadeildin er einstaklings- og liðakeppni
1.2 Keppendur eru 75.
1.3 Liðin eru 15 með 5 knöpum hvert. Þrír knapar úr hverju liði keppa í fjórgangi og fimmgangi. Í gæðingaskeiði, slaktaumatölti og tölti mega allir knapar hvers lið keppa.
Í þeim tilvikum gilda þrjár efstu einkunnir knapa hvers liðs.
Athugið að ekki er þörf á neyðarknapa í áhugamannadeild 2022 og eiga því reglur um neyðarknapa ekki við um það keppnisár.
Neyðarknapi : Liðum er heimilt að útnefna neyðarknapa, liðsmaður númer sex, í þeim tilvikum þar sem þrír af fimm aðalmönnum forfallast.
Til að nefndin gefi leyfi á að varaknapi komi inn verður að liggja fyrir læknisvottorð um að um raunveruleg forföll sé um að ræða.
Ekki er hægt að kalla inn varaknapa ef hestur forfallast. Neyðarknapi þarf að uppfylla inngangsskilyrði skv. 7. gr. þessa reglna.
Ath. Fyrir keppnisárið 2022 hefur verið ákveðið að keppa í nýrri grein gæðingaskeiði í stað flugskeiðs í gegnum reiðhöllina.
1.4 Keppnisgreinar 2022 eru fjórgangur, fimmgangur , slaktaumatölt, gæðingaskeið og tölt
1.5 Einungis eru riðin A úrslit og öðlast 7 efstu knapar eftir forkeppnina keppnisrétt í A úrslitin. Þrír knapar hvers liðs eru gjaldgengir í úrslit að lokinni forkeppni.
Ekki eru riðin úrslit í gæðingaskeiði en þar fer sætaröðun eftir meðaltali tveggja spretta hvers keppanda.
1.6 Lokatími skráningar fyrir hverja keppni er að miðnætti mánudags í keppnisvikunni. Skráning fer fram í Sportfeng.
1.7 Raðað er í riðla og eru 3 knapar í hverjum riðli. Leitast verður við að reyna að stilla þessu þannig upp að ekki verði margir í sama liði í sama riðli. Ekki er þó hægt að lofa að svo verði ekki.
1.8 Ef skráning berst eftir auglýstan skráningafrest fer sá hinn sami fremst í rásröð.
Skrá má varahest og varaknapa. Ef liðið skiptir um hest eða liðið þarf að skipta út knapa eftir að skráningafrest líkur þá breytist riðlaröðin ekki og ekki er hægt að skipta um uppá hvaða hönd er riðið. Stjórn Áhugamannadeildar Spretts getur kallað eftir læknisvottorði hests og/eða knapa ef þurfa þykir
2. Stigastöfnun
Árangur keppnisliða og einstaklinga er mældur í stigum.
2.1 Í einstaklingskeppninni fá 10 efstu knapar stig. 1. sæti gefur 12 stig, 2. sæti 10 stig, 3. Sæti 8 stig, 4. sæti 7 stig, 5. sæti 6 stig, 6. sæti 5 stig, 7. sæti 4 stig, 8. sæti 3 stig, 9. sæti 2 stig og 10. sæti 1 stig.
2.2 Knapi sem safnar flestum stigum á keppnistímabili er sigurvegari deildarinnar o.s.frv.
2.3 Í liðakeppninni eru stigin frá 1 til 45 og skilar sigurvegari keppnisgreinar 45 stigi til síns liðs. Sá sem er númer tvö í keppnisgrein skilar 44 stigum til síns liðs o.s.frv.
Í þeim keppnisgreinum þar sem allir knapar hvers liðs hafa heimild til að keppa, gilda einungis þrjár efstu einkunnir til stigagjafar.
2.4 Lið sem safnar flestum stigum yfir keppnistímabilið vinnur Áhugamannadeildina.
2.5 Séu tveir eða fleiri knapar jafnir í efsta sæti sýna dómarar sæta röðun knapa. Ef knapar eru jafnir í öðru sæti en því fyrsta, deila þeir með sér sætinu. Hlutkesti ræður úthlutun verðlauna.
Verði knapar jafnir í keppnisgrein skiptast stigin jafnt á milli þeirra og á það jafnt við um liðakeppnina og einstaklingskeppnina.
Engu breytir ef keppendum er úthlutaður verðlaunagripur skv. uppkasti. Fari fram dómaraúrskurður falla stigin hins vegar eftir þeirri niðurstöðu.
3. Úrskurður um fyrsta sæti í keppnisgrein og samanlögðum árangri
3.1 Í keppnisgreinum þar sem niðurstaða byggist á spjaldadómum skal skorið úr um fyrsta sæti með sæta röðun dómara.
3.2 Ef tveir knapar eru jafnir í samanlagðri stigasöfnun eftir lokamót Áhugamanandeildarinnar vinnur sá sem hefur unnið fleiri greinar.
Ef knaparnir hafa jafn mörg gull ráða þá silfrin og ef þau eru jafn mörg þá bronsin o.sfrv.
3.3 Ef tvö lið eru efst og jöfn í samanlögðum stigum eftir lokamót Áhugamannadeildarinnar vinnur það lið sem fleiri greinar vann í mótaröðinni, ef þau standa þá enn jöfn vinnur það lið sem oftar var í öðru sæti keppnisgreinar.
4. Verðlaun Áhugamannadeildar
4.1 Verðlaunagripir eru 7-8 í hverri keppnisgrein. Þrír efstu knapar í samanlögðum árangri á keppnistímabili fá verðlaunagripi. Farandgripir eru gefnir af styrktaraðilum.
4.2 Efsta lið eftir keppnistímabil fær verðlaunagrip og farandgrip sem gefinn er af styrktaraðila. Allir einstaklingar keppnisliðs, sem sigrar, fá verðlaunagripi.
5. Keppnisgreinar og reglur
5.1 Keppt er eftir FIPO reglum í keppnisgreinum sem þær reglur ná yfir, tölti, slaktaumatölti, fjórgangi, gæðingaskeið og fimmgangi. Horft er framhjá þeim annmarka að oftast er keppt á minni velli en gert er ráð fyrir í FIPO.
5.2 Séu breytingar frá FIPO reglum leyfðar eða ákveðnar skal yfirdómari koma þeim upplýsingum á framfæri með skýrum hætti á knapafundi eða á annan sannanlegan hátt.
5.3 Reglur ÍSÍ um notkun vímuefna eru í gildi í Áhugamannadeldinni. Verði knapi uppvís um að vera undir áhrifum vímuefna verður honum fyrirvaralaust vísað úr keppni og stigin falla úr gildi.
5.4 Að öðru leyti gilda „Lög og reglugerð um keppni á vegum LH“.
6. Reiðmennska
Dómarar geta gefið knöpum gul eða rauð spjöld eftir atvikum ef þeim finnst að knapar séu of grófir í sinni reiðmennsku. Stuðst er við viðmiðunarreglur FIPO.
Jafnvel þótt fleiri en einn dómari gefi gult spjald fyrir ákveðið tilvik telst það eitt gult spjald í Áhugamannadeildinni.
Fyrir hvert gult spjald umfram eitt á keppnistímabili verða 2 stig dregin af knapa í heildarstigasöfnun einstaklingskeppninnar.
Ef knapi fær rautt spjald er honum vikið úr viðkomandi keppnisgrein og fær að auki í frádrátt 5 stig í heildarstigasöfnun einstaklingskeppninnar. Þetta á eingöngu við um þau atvik þegar knapi fær rautt spjald vegna grófrar reiðmennsku, en ekki í þeim tilfellum þegar rautt spjald er gefið af tæknilegum ástæðum t.d. ef fer úr braut eða riðið er of marga hringi o.s.frv.
7. Keppendur í Áhugamannadeildinni – inngangsskilyrði
7.1 Knapar sem hafa töluverða reynslu af keppni en deildin er ekki byrjendadeild.
7.2 Knapar sem ekki hafa keppt í F1, V1, T1, T2 eða Meistaradeild seinustu 3 ár.
7.3 Öll gæðingakeppni, á öllum stigum, og kappreiðar er undanskilin þ.e.a.s. heimilt er að keppa í gæðingakeppni og kappreiðum án þess að það hafi áhrif á inngangskilyrði.
7.4 Þessar reglur gilda um öll mót, einnig innanhúsmót.
7.6 Knapar sem hafa ekki haft laun af tamningu eða þjálfun hesta seinustu 3 ár.
7.7 Villiköttur í Meistaradeild hefur ekki leyfi til að keppa í Áhugamannadeild.
7.8 Lágmarksaldur keppenda í Áhugamannadeild er 22 ár.
7.9 Stjórn Áhugamannadeildar Spretts hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylla inngangskilyrði.
8. Dómstörf
8.1 Dómarar
Haft skal að leiðarljósi að velja hæfustu dómara sem völ er á fyrir hvert verkefni.
8.2 Yfirdómari
Yfirdómari annast málefni dómara. Yfirdómari hefur vald til að víkja dómara frá keppni hvenær sem er ef honum finnst viðkomandi dómari hafa vikið frá faglegum gildum.
Yfirdómari hefur eftirlit með dómstörfum og gefur skýrslu um þau til stjórnar og dómara.
8.3 Mótsstjórn
Þrír skipa mótsstjórn, mótstjóri, yfirdómari og fulltrúi knapa. Mótsstjórn er æðsta vald á mótsstað og hefur þannig vald til að úrskurða ef mál koma upp sem valda ágreiningi.
8.4 Kærufrestur
Knapar og lið hafa einn sólarhring til að kæra framkvæmd eða útreikninga keppnisgreinar. Að þeim tíma liðnum standa niðurstöður. Kærur sem berast að loknu móti fara á sameiginlegt borð stjórnar, mótsstjórnar og eins fulltrúa knaparáðs, sem verða að kynna niðurstöðu innan tveggja sólarhringa frá því að kæra berst. Einkunnir dómara eru ekki kæranlegar.
9. Liðseigandi, styrktaraðilar og framsal keppnisréttar
9.1 Liðseigandi telst sá aðili sem stofnar liðið, sækir um og er skráður sem slíkur í gögnum Áhugamannadeildar Spretts.
9.2 Heimilt er að skipta um styrktaraðila og nafn liðs.
9.3 Ekki er heimilt að framselja, selja keppnisrétt eða skipta um eiganda liðs þ.e.a.s ef lið sem unnið hefur sér rétt til að keppa í deildinni ákveður að taka ekki þátt á næsta tímabili þá er ekki hægt að framselja keppnisrétt til annars liðs. Því sæti verður þá bætt í pottinn til úrdráttar á nýjum liðum.
9.4 Allar breytingar á liðsskipan og styrktaraðilum þurfa að fá samþykki stjórnar Áhugamannadeildar Spretts.
Kópavogur September 2021