893 3600
ahugamannadeild@sprettarar.is
Undirbúningur er hafinn fyrir sjötta keppnisárið í Áhugamannadeild Spretts. Síðastliðin keppnisár hafa heppnast mjög vel og erum við Sprettarar gífurlega þakklát keppendum, áhorfendum, sjálfboðaliðum og styrktaraðilum sem hafa komið að uppbyggingu deildarinnar. Equsana verður áfram aðal styrktaraðili deildarinnar þriðja árið í röð og þökkum við þeim kærlega fyrir.
Mótaröðin 2020 verður með næstum sama fyrirkomulagi og í ár þ.e.a.s greinarnar verða áfram fimm á fjórum keppniskvöldum en við gerum þó eina breytingu.
Breytingin er að á lokakvöldinu þ.e.a.s. í keppni í Tölti hafa liðin leyfi til að tefla fram öllum fimm knöpum liðsins en einungis þrjár efstu einkunnir gilda til stigagjafar og einungis þrír efstu knapar hvers liðs eru gjaldgengir í úrslit að lokinni forkeppni.
Tólf af fimmtán liðum Áhugamannadeildar Spretts 2019 hafa áunnið sér keppnisrétt fyrir árið 2020. En það eru þrjú lið sem falla úr deildinni eftir keppnisárið 2019 skv. reglum deildarinnar og eru það lið Hraunhamars, Landvit-Marwear og Geirland-Varmalands.
Þau lið sem unnið hafa sér keppnisrétt verða að staðfesta við forsvarsmenn deildarinnar áframhaldandi þátttöku fyrir 22 ágúst 2019 ásamt liðskipan. Hvert lið hefur fimm knapa.
Ný lið sem áhuga hafa á að koma í deildina þurfa að skila inn umsóknum fyrir 26 ágúst.
Umsókninni þurfa að fylgja staðfest nöfn fimm knapa liðsins. Dregið verður úr umsóknum Metamótshelginni okkar í Spretti eða á laugardeginum 7 september.
Þau lið sem féllu úr deildinni 2019 geta sótt um aftur og fara í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um. Það eru þrjú sæti laus í Áhugamannadeild Spretts 2020.
Umsóknir sendist á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 26 ágúst n.k.
Við bendum á endurskoðaðar reglur Áhugamannadeildar Spretts – liður 7 - um hvaða knapar hafa keppnisrétt í deildinni.
7. Keppendur í Áhugamannadeildinni – inngangsskilyrði
7.1. Knapar sem hafa töluverða reynslu af keppni en deildin er ekki byrjendadeild.
7.2. Knapar sem ekki hafa keppt í F1, V1, T1, T2 eða Meistaradeild seinustu 3 ár.
7.3 Öll gæðingakeppni, á öllum stigum, og kappreiðar er undanskilin þ.e.a.s. heimilt er að keppa í gæðingakeppni og kappreiðum án þess að það hafi áhrif á inngangskilyrði.
7.4 Þessar reglur gilda um öll mót, einnig innanhúsmót.
7.5 Knapar sem lokið hafa reiðkennaranámi á háskólastigi hafa ekki keppnisrétt.
7.6 Knapar sem hafa ekki haft laun af tamningu eða þjálfun hesta seinustu 3 ár
7.7 Villiköttur í Meistaradeild hefur ekki leyfi til að keppa í Áhugamannadeild
7.8 Lágmarksaldur keppenda í Áhugamannadeild er 22 ár.
7.9 Stjórn Áhugamannadeildar Spretts hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylla inngangskilyrði
Íslandsmót 2019 er undanskilið þ.e.a.s. keppni á Íslandsmóti hefur ekki áhrif á inngangskilyrði í Áhugamannadeild 2020.
Dagsetningar móta 2020 hafa verið ákveðnar – með fyrirvara um niðurröðun greina.
Fimmtudagur 6 febrúar – Fjórgangur
Fimmtudagur 20 febrúar – Fimmgangur
Fimmtudagur 5 mars : Slaktaumatölt og flugskeið gegnum höllina
Fimmtudagur 19 mars : Tölt – lokamótið
Hvetjum hestamenn að safna saman í lið og sækja um í Áhugamannadeild Spretts 2020.