Næsta mót í röðinni er keppni í Top Reiter fimmgangi í Gluggar og Glerdeildinni. Keppnin í fyrra var æsispennandi og mörg ný fimmgangspör stigu sín fyrstu skref í keppni.
Mikið er búið að leggja í æfingar enda er mikið í húfi enda stig og glæsileg verðlaun í boði. Æfingum og úrtökum er nú lokið og nú er skráning á fullu. Ráslistar verða birtir á miðvikudaginn 1 mars.
Í fyrra unnu þau Katrin Sigurðardóttir og Þytur frá Neðra Seli fimmganginn með einkuninna 6,24. Heyrst hefur að þau munu mæta til leiks á fimmtudaginn og verður spennandi að sjá hvernig til tekst. Í öðru sæti í fyrra voru þau Aníta og Sleipnir frá Runnum með einkuninna 6,21 og í þriðja sæti Ámundi Sigurðarsson og Sprettur frá Brimilsvöllum með 5,69.
Húsið opnar kl. 17:30 á fimmtudaginn og einvala lið Sprettara mun sjá um að reiða fram veitingar í Veislusalnum okkar á góðu verði.
Við hvetjum alla áhugamenn um hestamennsku að taka kvöldið frá, koma í Sprettshöllina, njóta og horfa á spennandi keppni. Aðgangur er frír.
Allir að mæta í Sprettshöllina fimmtudag 2 mars – keppni hefst kl 19:00
Hlökkum til að sjá ykkur öll.