Það stefnir í stórskemmtilegt Ladies Night á vegum Töltgrúppunar næstkomandi laugardagskvöld í Samskipahöllinni. Húsið opnar kl 20:30 og við ætlum að byrja partýið strax. Aðgangseyrir er einungis 1500 krónur og eru allar konur velkomnar, 20 ára og eldri, hvort sem þær stunda hestamennsku eða ekki. Vínkynning verður í boði Föroya Bjór, meðan byrgðir endast og því er um að gera að mæta tímalega. Þema kvöldsins er Kúrekaþema. Tilboð verður á barnum, skemmtilegar uppákomur, gítar og söngpartý sem endar í diskóballi.
Við bjóðum allar konur velkomnar að koma og skemmta sér með okkur í Spretti.
...svo verður karlpeningnum hleypt inn kl. 23.00!
Við hvetjum allar konur sem keppa á Kvennatölti Spretts og Mercedes-Benz fyrr sama dag, til að mæta á skemmtilegt Ladies Night að góðum degi loknum.
Sjáumst hress í Spretti