Í dag kynnum við svo knapa og hesta sem keppa í slaktaumatöltinu næstkomandi föstudag í Samskipahöllinni í Spretti.
Fimm af átta deildum landsins keppa í slaktaumatölti og því verða það fimm knapar sem etja saman hestum sínum í úrslitum í hver verður Meistari Meistaranna 2016 í slaktaumatölti.
Til leiks mæta:
Kea Mótaröðin : Baldvin Ari Guðlaugsson og Lipurtá frá Hóli IIHúnverska mótaröðin : Fanney Dögg Indriðadóttir og Brúney frá GrafarkotiGluggar og Glerdeildin : Jóhann Ólafsson og Gnýr frá ÁrgerðiMeistaradeildin : Hinrik Bragason og Pistill frá Litlu-BrekkuKS deildin : Gústaf Ásgeir Hinriksson og Skorri frá SkriðulandiHvetjum alla til að taka kvöldið frá og koma í Samskipahöllina til að sjá alla helstu sigurvegara í mótaröðum landsins keppa um titilinn Meistari Meistaranna.
Húsið opnar kl. 17:30 og í boði verða léttar veitingar á mjög góðu verði að hætti Sprettara. Aðgangseyrir er kr. 1000 pr. mann