Hafdís Svava Níelsdóttir hefur verið ráðin til starfa á skrifstofu Spretts frá og með 5. apríl. Hafdís Svava er með BS gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst og hefur lokið fullnaðarprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur töluverða reynslu af bæði þjónustustörfum og bókhaldi. Hafdís er félagi í Spretti og hefur tekið þátt í ýmsum nefndarstörfum á vegum félagsins, m.a. mótanefnd og Kvennatöltsnefnd.
Um er að ræða hálft stöðugildi þar sem helstu verkefni eru utanumhald um reikninga og reikningagerð, halda utan um og greina innheimtar tekjur félagsins og rekstrarfélagsins af fræðslustarfsemi, mótahaldi, auglýsingum, veitingasölu ofl., skráning og utanumhald um námskeið á vegum félagsins og fleira.
Hægt er að ná í Hafdísi í síma 662-3632 og í netfanginu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
Hafdís verður með aðstöðu á skrifstofu Spretts í Samskipahöllinni.