Fréttir
Íslenski afrekshesturinn
Spennandi fyrirlestrar í Spretti.
Miðvikudagskvöldið 6. apríl verður afar fróðlegt fyrir hrossaræktendur og allt áhugafólk umíslenska hestinn en þá mun dr. Þorvaldur Árnason fjalla um ræktun afrekshestsins og dr. GuðrúnStefánsdóttir kynna helstu niðurstöður úr doktorsverkefni sínu sem hún kláraði á síðasta ári ogfjallar um líkamlegt álag á íslenska hestinn við mismunandi kringumstæður.Í fyrirlestri Guðrúnar verður fjallað um líkamlegt álag á hross í kynbótasýningu og hver áhrifinaf kynferði og aldri eru. Kynntar verða rannsóknarniðurstöður um samanburð á líkamlegu álagi átölti og brokki á sama hraða og hvert álagið er á 100 m flugskeiði, svo og hvaða áhrif þungiknapa hefur á líkamlegt álag á tölti. Hérna er um afar fróðlegar niðurstöður að ræða, ekki sístfyrir þá sem hafa þjálfun hesta til ýtrustu afreka í huga.Þorvaldur mun svo fjalla um ræktun afrekshestsins og á hvern hátt ræktun búfjár er í eðli sínusamvinnuverkefni, hvernig hinn einstaki ræktandi kemur inn í þá mynd og hvernig ræktandinngetur hámarkað líkurnar á árangri.Staður: Samskipahöllin í Spretti.Tími: Miðvikudagskvöldið 6. April - Húsið opnar klukkan 19.30 og fyrirlestrarnir byrja klukkan20:00.Kaffiveitingar.Fróðlegt kvöld með okkar fremsta vísindafólki sem enginn má láta fram hjá sér fara.Hestamannafélagið Sprettur, Skeiðfélagið og Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins.