Fréttir
Fræðslufundur Reiðveganefndar Spretts
Kæru Sprettarar.Fyrir þá sem hafa áhuga á hestaferðum,Reiðveganefnd Spretts heldur fræðslufund um reiðvegamál og kortasjá í veislusal Spretts.Fimmtudaginn 7. apríl kl. 20:00.Ræðumenn Halldór H. Halldórsson og Sæmundur Eiríksson frá Samgöngunefnd LH.Fundurinn er öllum opinn, sambærilegur fundur verður haldinn hjá hestamannafélaginu Herði þann 10. maí nk.Við vonumst til að sjá ykkur sem flest.Reiðveganefnd Spretts.