Fréttir
Konukvöld Spretts 25.feb sl.
Hið stórskemmtilega Konukvöld Spretts var haldið í Veislusalnum 25. febrúar s.l.
Það voru á milli 90 og 100 konur sem mættu galvaskar og ákveðnar í að skemmta sér saman.
Töltgrúppan fjölmennti og frábært að sjá áhuga þessara kvenna sem flestar komu beint úr hesthúsinu.
Kvennadeildin bauð upp á fjölbreytt skemmtiatriði og slógu þær Elva Dögg uppistandari og Sigga Dögg kynfræðingur í gegn með opinskáu framlagi sínu.
Mikið var hlegið í salnum þó sumar sáust súpa hveljur
Velunnarar félagsins sáu um að gefa veitingar sem saman stóðu af víni, bjór, brauði, ostum og pestói, konfekti, franskri súkkulaðiköku og ýmsu öðru góðgæti.
Happdrættisvinningarnir voru heldur ekki af verri endanum og fóru konur glaðar heim skreyttar skartgripum, hársnyrtivörum, hestavörum ýmiskonar og húðvörum svo eitthvað sé nefnt.
Stjórn Kvennadeildar þakkar fyrir sig og er strax farin að undirbúa næsta kvennakvöld að ári.Hvetjum allar Sprettkonur til að fylgjast með dagskránni okkar og koma og vera með.