Aðrir vetrarleikar Spretts fara fram á sunnudaginn kemur þann 6. mars kl 13.00 og verða þeir haldnir í Samskipahöllinni.
Vetrarleikarnir eru þriggja móta röð þar sem sýnt er hægt tölt og fegurðartölt. Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.
Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:
Pollar (9 ára og yngri) – teymdir
Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
Börn (10-13 ára)
Unglingar (14-17 ára)
Ungmenni (18-21 árs)
Konur II - minna keppnisvanar
Karlar II - minna keppnisvanir
Heldri menn og konur (50 ára +)
Konur I - meira keppnisvanar
Karlar I - meira keppnisvanir
Opinn flokkur (karlar og konur)
Mótanefnd Spretts vill beina þeim tilmælum til keppenda að fara eftir lögum og reglugerðum um keppni á vegum LH um skyldur keppenda og þá sérstaklega hvað varðar löglegan beislisbúnað og að óheimilt er að vera undir áhrifum áfengis í keppni.
Skráning verður í Sprettshöllinni á milli kl.11:00 – 12:00 á sunnudeginum.
Skráningargjöld eru eftirfarandi:
Pollar frítt
Börn kr. 500
Unglingar kr. 1.000
Aðrir flokkar kr. 1.500