Óvissuferð kvennadeildar var farin þann 8. mai s.l. í blíðskaparveðri.
Um sjötíu konur skráðu sig til leiks. Fararstjóri var Gréta Boða. Lagt var af stað frá kerrustæðinu við Heimsenda um átta leytið og riðið áleiðis til Hafnarfjarðar og síðan sem leið liggur inní Heiðmörk þar sem boðið var upp á kræsingar, eins og hver gat í sig látið, frá Taco Bell Hafnarfirði og guðaveigar með.
Kvennadeildin þakkar, öllum þeim konum er tóku í þessari skemmtilegu uppákonu. Taco Bell Hafnarfirði fær sérstakar þakkir fyrir stuðninginn.
Kvennadeild Spretts