Fréttir
Spilakvöld 23.feb.
Æskulýðsnefndin heldur spilakvöld þriðjudaginn 23. febrúar kl. 18. Boðið verður upp á pizzur og svo ætlum við að sjálfsögðu að hafa gaman saman og spila, börnin mega að sjálfsögðu koma með spil með sér.Við ætlum einnig að nýta tækifærið og kanna áhuga þeirra sem vilja taka þátt í Æskan og hesturinn sem haldið verður í apríl því ekki er seinna vænna en að byrja að skipuleggja og æfa sig.Allir Sprettskrakkar hjartanlega velkomnir og ekki gleyma spilunum.Með kveðju,Æskulýðsnefndin