Fréttir
Mikið um að vera í Sprettshöllinni um helgina
Mikið verður um að vera í reiðhöllum Spretts um helgina. 29.-31.jan.
Æfingartímar fyrir Glugga og Glerdeildina verða bæði laugardag og sunnudag, kvölds og morgna.
Helgarnámskeið hjá Antoni Páli mun bæði fara fram i Hattarvallahöllinni, fyrir hádegi og eftir hádegi í Hólfi 3 í Samskipahöllinni.
Barnanámskeið verða í Hattarvallahöllinni bæði laugardag og sunnudag um miðjan dag og svo verður jú venjubundin hundaþjálfun seinnipart sunnudags þar líka.
Reiðmaðurinn verður í hólfi 1 bæði laugardag og sunnudag.
Við biðjum félagsmenn að sýna þessu tillit og þolinmæði.
Góða helgi.
Framkvædarstjóri