Fréttir
Jólamarkaður í veislusal Spretts 9.des
Minnum Sprettara á að á morgun, miðvikudaginn 9.des kl 17-19 verður jólamarkaður í veislusal Samskipahallarinnar.
Fræðslu og Æskulýðsnefndirnar standa fyrir þessum markaði þar sem Sprettsfélagar og velunnarar hafa tekið vel við sér og ætla að bjóða ýmsan varning til sölu.
Notuð hestaföt og hestavörur, kjöt beint frá býli, ýmiskonar handverk verður á boðstólum.
Kvennadeildin verður með Sprettsvarning til sölu.
Við hvetjum alla til að kíkja við í notalega stemmningu og örugglega verður hægt að gera góð kaup.
Bendum fólki á að ekki verða posar á staðnum.
Hlökkum til að sjá sem flesta.