Kvennadeild Spretts tók á móti Fákskonum og Sörlakonum föstudagskvöldið 19. apríl. Þrátt fyrir afleitt veður mættu hátt í 100 konur, flestar komu keyrandi en nokkrar konur úr hvoru félagi létu veðrið ekki aftra sér og komu ríðandi. Í félagsheimilinu áttum við saman skemmtilega stund, borðuðum saman og skemmtum okkur við undirleik Reynis Jónassonar harmonikkuleikara. Var þessi kvöldstund vel heppnuð í alla staði og viljum við þakka öllum þeim sem komu í þessa fyrstu móttöku okkar Sprettskvenna.
Myndir eru væntanlegar og verða settar inn á heimasíðuna á næstu dögum.
Stjórn Kvennadeildar Spretts