Blaðamannafundur verður haldinn í Sprettshöllinni miðvikudaginn 26. ágúst kl. 18:00 og eru allir Sprettarar velkomnir. Á fundinum verður kynntur tímamóta aðalstyrktarsamningur sem félagið mun skrifa undir á fundinum. Einnig verður dregið um þau lið sem komast að í Áhugamannadeildinni 2016 og undirskrifaður styrktarsamningur fyrir deildina. Liðin sem þegar hafa tryggt sér keppnisrétt í deildinni verða einnig kynnt.
Það eru fjögur liðspláss laus í Áhugamannadeildina 2016 og hefur áhugi nýrra liða verið mikill. Sjö ný lið hafa sótt um þau fjögur pláss sem laus eru þannig að spennan er mikil fyrir því hvaða lið komast að.
Hvetjum alla Sprettara, keppendur, umsækjendur og aðra áhugasama, til að koma í Sprettshöllina á miðvikudaginn 26. ágúst kl. 18:00.
Kveðja
Stjórn Spretts