Ferðanefnd Spretts boðar til hópreiðar sem fyrr segir á sumardaginn fyrsta 25. apríl. Lagt verður af stað frá félagsheimili Spretts (Andvara) kl. 14:00. Riðið skal sem leið liggur gegnum Heimsenda að Rauðavatni og eftir frábærum reiðstígum að Hafravatni. Áð verður í rétt, norðanmegin við vatnið og svo til baka austur fyrir Hafravatn. Áætlaður reiðtími er ca. 2 til 2½ klst. hvor leið.
Við Hafravatn verður boðið uppá ýmsa forrétti og aðalréttur grillaðar pylsur og kók, jafnvel einn og einn bauk að ógleymdum vöfflum í eftirrétt, allt að sjálfsögðu gegn vægu gjaldi.
Sumarið er komið og engin ástæða til að láta sig vanta í slíka ferð, það er jafnvel spáð snjóléttum degi.
Sjáumst hress og kát.
Ferðanefndin