Næstkomandi þriðjudag þann 23. apríl verður umhverfisdagur Spretts. Markmiðið með þessum degi er að efla umhverfisvitund Sprettara með því að fá alla félagsmenn til að taka til í umhverfi sínu og bæta umgengni almennt. Á þessum degi er lögð áhersla á að taka til utandyra, kringum húsin okkar og í umhverfinu en ekki inni í húsunum. Tiltektardagurinn er mikilvægur dagur á hverju vori fyrir hverfið okkar þar sem margar hendur koma saman og taka til eftir veturinn.
Áformað er að hefjast klukkan 17:00 en um klukkan 20:00 verður pítsa og gos í boði upp í félagsheimili fyrir duglega Sprettara.
Sprettarar hjálpumst að og tökum höndum saman næstkomandi þriðjudag við að gera glæsilegt hverfi enn glæsilegra.
Umhverfisnefndin.