Fréttir
Íslandsmót í hestaíþróttum 8-12 júli 2015 í Spretti
Íslandsmótin í hestaíþróttum 2015 verður haldið á félagssvæði Spretts í Kópavogi og Garðabæ dagana 8 til 12 júli n.k.
Öllu verður tjaldað til enda búist við fjölda knapa, hesta og áhorfenda.
Félagssvæði Spretts er að komast í hátíðarbúninginn og Sprettarar vinna ötullega að undirbúningi.
Forkeppnin öll verður keyrð samtímis á tveimur völlum 8-10 júlí en svo öll úrslitin á aðalvellinum í Sprettsskeifunni þann 11 og 12 júli.
Hjá Spretti verður boðið uppá allt það besta sem er að gerast í hestageiranum okkar enda aðstaðan öll eins og best verður.
Á mótinu verða ljúffengar veitingar alla dagana þar sem Sprettarar selja kaffi og með því ásamt því að skemmtilegir matarvagnar verða á staðnum með úrvali veitinga.
Búið er að opna fyrir skráningu á www.sportfengur.com og er skráningafrestur til miðnættis 28 júni.
Stofnuð hafa verið tvö mót í Sportfeng. Eitt fyrir fullorðna og ungmenni og annað fyrir börn og unglinga. Þetta er gert til að einfalda vinnu í Kappa - biðjum þá sem skrá sig að hafa það í huga.
Skráningagjald er kr. 4500 fyrir barna-, unglinga- og ungmennaflokka, kr. 6500 fyrir fullorðinsflokkana og kappskeiðgreinar kr. 4.000,-
Skráning er staðfest með greiðslu – annað ekki tekið til greina.
Skráningarfrestur er til miðnættis sunnudagsins 28 júni.
Hægt er að skrá til miðnættis 1 júlí en þá hækkar skráningargjaldið um kr. 2000 á hverja grein.
Allar frekar upplýsingar um skráningu fást með að senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Keppendur athugið að það er einn keppandi inná vellinum í einu nema í fjórgang barnaflokki en þá verða 3 inná í einu og riðið eftir þul.
Öll aðstaða er til staðar á Sprettssvæðinu og hesthús í boði. Allar nánari upplýsingar um hesthúsapláss fást hjá framkvæmdastjóra Spretts Magga Ben.
Við hvetjum knapa til að fylgjast vel með upplýsingum á heimasíðu Spretts, á facebooksíðu Spretts og á viðburðinum "Íslandsmót í hestaíþróttum" sem stofnuð hefur verið. Einnig verður gefið út kort um aðkomur að svæðinu og hvar hvaða viðburðir fara fram.
Hlökkum til að sjá ykkur öll hjá Spretti í júlí.