Fréttir
Umhverfisnefnd kallar á Sprettara.
Umhverfisnefnd Spretts hefur fengið garðyrkjustjóra Kópavogs í lið við sig varðandi gróðursettningu á Sprettssvæðinu.
Kópavogsbær mun skaffa trjáplönntur og nú leitum við til félagsmanna að fjölmenna Miðvikudagskvöldið 24.júní kl:18-21 og taka höndum saman og gróðursetja á svæðinu okkar.
Við mundum hittast Sprettshöllina og byrja þar.
Þetta er mikill þáttur í samstarfi við bæjarfélagið í sambandi við umhverfið hjá okkur.
Vonumst til að sjá sem flesta Sprettara þessar þrjár klukkustundir að hjálpast að við að fegra og bæta umhverfið okkar, margar hendur vinna létt verk.
Við biðjum ykkur að skrá ykkur hjá Magga Ben í gegnum netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða hjá Óskari Páli í gegnum netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Umhverfisnefnd Spretts