Fréttir
Svansstyttan afhent á Gæðingamóti Spretts
Svanstyttan er gefin til heiðurs Svani Halldórssyni, stofnfélaga Gusts og síðar Spretts. Svanur hefur ávallt lagt mikið upp úr því að vera prúðbúinn, snyrtilegur og á vel hirtum hesti.
Svansstyttan er veitt Sprettsfélaga sem klæðist félagsbúningi Spretts á mótum og þykir ávallt vera til fyrirmyndar hvað varðar prúðmannlega reiðmennsku, klæðaburð og hirðingu hests, utan vallar sem innan.
Að þessu sinni var það hann Hafþór Hreiðar Birgisson sem hlaut styttuna.
Svanur Halldórsson afhennti styttuna.
Á myndinni eru einnig Helena Ríkey Leifsdóttir en hún hlaut styttuna 2014 og Linda Gunnlaugsdóttir formaður Spretts.