Sprettarar athugið, gámur undir plast verður staðsettur fyrir framan reiðhöllina á Kjóavöllum, Andvara á morgun, laugardag. Gámurinn verður opinn á milli klukkan 12:00 og 15:00 fyrir Sprettsfélaga. Athugið að einungis er ætlast til að rúlluplast má fara í gámin ekki spottar eða net.
Umhverfisnefndin vill einnig hvetja félagsmenn til að taka höndum saman og hreinsa til drasl og rusl í kringum húsin og í nánasta umhverfi. Á umhverfisdaginn munum við svo öll hjálpast til að gera glæsilegt hverfi enn glæsilegra.