Fréttir
Skráning á Opna Íþróttamót Spretts (WR) og Úrtöku fyrir HM
Skráning hefst á morgun 1. júni fyrir Opna Íþróttamót Spretts (WR) og Úrtöku fyrir HM sem haldið verður 10.-14. júni n.k. á félagssvæði Spretts. Dagskráin verður þannig að fyrri úrtakan verður miðvikudaginn 10. júni og sú seinni verður á sjálfu Íþróttamótinu sem hefst formlega föstudaginn 12. júni. Skráning er á sportfengur.com og stendur til miðnættis 7. júni. Vinsamlegast athugið að þeir sem eru að skrá sig í úrtökuna þurfa að velja viðburðinn „Úrtaka fyrir HM“ Þeir sem skrá sig á Íþróttamótið skrá sig undir viðburðinn „Opið Íþróttamót Spretts“ Keppt verður í eftirtöldum flokkum og greinum: Meistaraflokkur: Fjórgangur V1 – Tölt T1 – Tölt T2 – Fimmgangur F1 – Gæðingaskeið 1.Flokkur : Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið 2.Flokkur : Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Tölt T7 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið Ungmennaflokkur : Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Tölt T7 – Fimmgangur F2 –
Gæðingaskeið Unglingaflokkur : Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Tölt T7 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið Barnaflokkur : Fjógangur V2 – Tölt T3 – Tölt T7 Kappskeiðreiðar : 100m skeið – 150m skeið – 250 m skeið Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina og/eða fella niður greinar og flokka ef það næst ekki nægileg þátttaka. Skráningagjöld eru : Úrtaka fyrir HM kr. 6.000 pr úrtöku (kr. 12.000 fyrir tvöfalda úrtöku) Meistaraflokkur og gæðingaskeið kr. 5500 1 og 2 flokkur og Ungmennaflokkur kr. 5000 Unglinga- og barnaflokkur kr. 3000 Skeiðgreinar kr. 3000
Ef þið lendið í einhverjum vandræðum við skráningu þá vinsamlegast sendið tölvupóst á Karen netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða á Huldu á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.