Fréttir
Gæðingakeppni Spretts 5.-7. júni 2015
Gæðingamót Spretts fer fram dagana 5.júní – 7.júní 2015.
Skráning fer fram á Sportfeng.
Skráning hefst miðvikudaginn 27.maí og lýkur mánudaginn 1.júní. á miðnætti
Skráningargjald í gæðingakeppnina er kr 4.000 en fyrir börn og unginga kr 2.000.
Skráningargjald fyrir skeiðgreinar og stökk kappreiðar er kr 3.000.
Athugið: Skráning fer ekki í gegn fyrr en skráningargjald hefur verið greitt! Þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk verða að tilkynna það með því að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Boðir verður upp á eftirfarandi flokka:
§ A-flokk gæðinga
§ A-flokk gæðinga áhugamenn
§ B-flokk gæðinga
§ B- flokk gæðinga áhugamenn
§ C- flokk gæðinga
§ Ungmenni (ef næg þátttaka verður)
§ Unglingar
§ Börn
§ Skeið 100m, 150m, 250m
§ 300 m Stökk
§ Pollar teymdir og pollar ríðandi ef veður leyfir.
Á gæðingamótinu verður boðið upp á sérstakan flokk fyrir vana polla. Pollum er ekki sætaraðað en allir frá þátttökuverðlaun. Pollum er ekki heimilt að mæta á stóðhestum. Pollar þurfa ekki að skrá sig í gegnum Sportfeng heldur á staðnum.
Einnig hvetjum við fólk til að skrá sig í flokka miða við keppnisreynslu hvers og eins.
Glæsileg verðlaun verða í öllum greinum og að auki verður gæðingur mótsins valinn sem og knapi mótsins.
Áhugamenn í A og B flokki ríða með reyndari knöpum en áhugamenn ríða svo sérstök úrslit sunnudaginn 7. júní og þurfa þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk að tilkynna það með því að senda póst áThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.(knapi + hestur + keppnisflokkur)
Svanstyttan er gefin til heiðurs Svani Halldórssyni, stofnfélaga Gusts og síðar Spretts. Svanur hefur ávallt lagt mikið upp úr því að vera prúðbúinn, snyrtilegur og á vel hirtum hesti.
Svansstyttan er veitt Sprettsfélaga sem klæðist félagsbúningi Spretts á mótum og þykir ávallt vera til fyrirmyndar hvað varðar prúðmannlega reiðmennsku, klæðaburð og hirðingu hests, utan vallar sem innan
Vinsamlega veitið því athygli að í gæðingakeppni þarf hesturinn að vera í eigu Sprettsfélaga. Keppendur eru beðnir að skoða vel reglur LH sem gilda um þátttöku í gæðingakeppni og þá sérstaklega.
§ reglur varðandi keppnishesta / réttindi til skráningar
§ reglur varðandi fótabúnað, beislisbúnað og útbúnað knapa
§ járningar
ATHUGIÐ: Ekki verður hægt að skrá sig eftir að skráningarfresti lýkur.
Mótanefnd auglýsir eftir aðstoð við ýmis störf á mótinu, en framgangur mótsins veltur alfarið á góðum stuðningi félagsmanna.