Næstu helgi mun Kópavogsbær halda upp á afmæli sitt með stórtónleikum í Kórnum þann 10 maí, en húsið opnar kl 15:00. Vegna þessa má búast við mikilli umferð gesta um og í kringum svæðið okkar. Í tengslum við tónleikana hefur verið gefið heimild til að nota kerrustæðin sem bílastæði fyrir gesti og þurfum við því að biðja félagsmenn að fjarlægja kerrur af stæðinu sem fyrst.
Einnig er gaman að segja frá því að hluti af afmælishátíðinni fer fram í Spretti, meðal annars verður reiðsýning á vegum æskulýðsnefndar þann 10 maí kl: 14 í reiðhöllinni og eftir það verður teymt undir börnum á vegum reiðskola á svæðinu.
Kveðja Framkvæmdarstjóri