Ágætu félagsmenn!
Á aðalfundi félagsins í lok febrúar s.l. var ákveðið að fullt félagsgjald yrði kr. 12.000 miðað við heilt ár. Á sama fundi var ákveðið að breyta reikningsári félagsins og verður það eftirleiðis frá 1. október til 30. september.
Af þessum sökum er nú innheimt félagsgjald fyrir tímabilið 1. mars til 30. september, þ.e. fyrir 7 mánuði í stað 12 mánaða. Ákveðið var að ekki yrðu sendir út greiðsluseðlar vegna félagsgjaldanna í ár og birtast því félagsgjöldin eingöngu í heimabönkum félagsmanna. Er þetta gert til þessa minnka pappírssóun. Við vonum að félagsmenn greiði félagsgjöldin tímanlega og hvetjum alla sem eru á Sprettssvæðinu og ekki eru í félaginu okkar til þess að gerast félagsmenn.
Kveðja Lárus, gjaldkeri Spretts