Ferðanefnd Spretts boðar til hópreiðar laugardaginn 13. apríl. Lagt verður af stað frá gamla félagsheimili Andvara klukkan 14:00 Riðið skal sem leið liggur um Heiðmörk og Gjármót gegnum Smyrlabúð í KALDÁRSEL. Áætlaður reiðtími er ca. 1 til 1 ½ klukkustundir hvor leið.
Boðið verður upp á grillaðar pylsur og kók, jafnvel einn og einn bauk gegn vægu gjaldi í Kaldárseli .
Munið eitt, veður og veðurfar eru ekki vandamál heldu hvernig við búum okkur.
Sjáumst hress og kát.
Ferðanefndin