Líflandsmót Fáks verður haldið 25. og 26. apríl. Skráningargjöld eru aðeins 1.500 kr á hverja skráningu en skráning verður frá miðnætti 18. og fram að miðnætti 21. apríl á http://skraning.sportfengur.com/ (Veljið skráningu, mót, félag og svo fylla út reitina)
Vegleg þátttökuverðlaun frá Líflandi!
Keppt verður í tölti, fjórgangi og fimi í öllum flokkum. Í unglinga- og ungmennaflokki verður keppt í fimmgangi og slaktaumatölti og í barnaflokki verður keppt í T7.
Við hvetjum alla til þess að taka þátt í þessu skemmtilega móti! :)
F.h. Æskulýðsnefndar Fáks