Opnað hefur verið fyrir skráningar á keppnisnámskeið hjá Erlu og Jonna ef einhverjir vilja bætast í hópinn. Fyrsti tíminn var síðastliðinn þriðjudag og haldið verður áfram í þessari viku. Síðasti skráningardagur er 9. apríl fyrir þá sem vilja bætast í hópinn. Farið verður yfir helstu atrið til þjálfunar fyrir keppni, bæði íþróttakeppni og gæðingakeppni. Erla og Jonni munu fylgja krökkunum eftir á mótum vorsins. Frábært tækifæri fyrir þá sem vilja stuðning í keppni.
Fræðslunefnd