Hið sívinsæla Kvennatölt Spretts fer fram í Sprettshöllinni í Kópavogi laugardaginn 18. apríl nk. Mótið hefst kl. 11 að morgni og verður lokið seinnipartinn. Að venju er boðið upp á flokka við allra hæfi.
Boðið er upp á keppni í fjórum flokkum:1. Opinn flokkur
- opinn öllum sem vilja. Gert er ráð fyrir að reynslumiklir knapar skrái sig í þennan flokk (á líka við um reynslumikla áhugamenn/ungmenni og/eða þá sem náð hafa góðum árangri í tölti).
2. Meira vanar
- ætlaður konum sem eru töluvert vanar í keppni.
3. Minna vanar
- ætlaður konum sem hafa litla reynslu í keppni, en þó einhverja.
4. Byrjendaflokkur
- ætlaður konum sem eru að stíga sín fyrstu skref á keppnisvellinum eða hafa mjög litla reynslu.
ATH!
- Hafi keppandi sigrað í einhverjum styrkleikaflokki kvennatöltsins áður skal viðkomandi færast upp um flokk.
- Hafi keppandi komist þrisvar eða oftar í A-úrslit í einhverjum styrkleikaflokki kvennatöltsins áður skal viðkomandi færast upp um flokk.
Keppendur eru hvattir til að sýna metnað við val á keppnisflokki!
Í byrjendaflokki eru þrír keppendur saman í holli, sýnt er hægt tölt og tölt á frjálsri ferð, ekkert snúið við. Í öllum öðrum flokkum eru 2-3 keppendur saman í holli, sýnt hægt tölt, snúið við, tölt með hraðabreytingum og svo greitt tölt. A og B úrslit í öllum flokkum.
Aldurstakmark til þátttöku er 18 ár (miðað er við ungmennaflokkinn). Skráningargjald er kr. 4.500 á hest. Leyfilegt er að skrá fleiri en einn hest til þátttöku, en komi keppandi fleiri en einum hesti í úrslit skal hann velja einn hest til úrslitakeppni.
Skráning fer fram í gegnum www.sportfengur.com og stendur hún frá 9.-13. apríl nk.
Allar konur eru velkomnar, vegleg verðlaun í boði, vinalegt andrúmsloft og topp aðstæður til keppni. Þetta er mót sem enginn hestakona má missa af – takið daginn frá!