Miðsalan hófst með látum í gær og ljóst er að mikil spenna er fyrir laugardagskvöldinu í Sprettshöllinni, Kópavogi. Miðar fást í Líflandi Lynghálsi, Top Reiter Ögurhvarfi og í verslun Baldvins og Þorvaldar á Selfossi. Miðinn kostar kr. 3.500.
Viðburðurinn verður núna á laugardaginn, 4. apríl í Sprettshöllinni. Húsið opnar kl. 18:30.
Tilboð í miðasölu eru þessi:
· 1 aðgöngumiði + 1 happdrættismiði = 4.000 kr.
· 6 happdrættismiðar = 4.000 kr.
Happdrættisvinningarnir eru glæsilegir og þakkar landsliðsnefnd þeim er leggja til vinningana kærlega fyrir veglega þátttöku í verkefnum landsliðsins.
1. Vinningur - Ölnir frá Akranesi Gefandi Margrétarhof. Sigurvegari í 5 vetra flokki á landsmóti 2014.
2. Vinningur - Eldur frá Torfunesi. Gefandi Anna Fjóla Gísladóttir. Aðaleinkunn 8.60 þriðja sæti í 5 vetra flokki á landmóti 2012.
3. Vinningur - Stormur frá Herríðarhóli. Gefandi Ólafur Arnar Jónsson. Sigurvegari í tölti á landsmóti 2014, Íslandsmeistari í tölti.
4. Vinningur - Topreiter hnakkur. Gefandi Topreiter.
5. Vinningur - ferðavinningur. Gefandi Úrval útsýn
Einnig viljum við minna á STÓÐHESTAVELTUNA. LANG STÆRSTA STÓÐHESTAVELTA SEM HALDIN HEFUR VERIÐ Á FOLATOLLUM – ALLIR HAGNAST! 100 FOLATOLLAR UNDIR HEIÐURSVERÐLAUNA, FYRSTU VERÐLAUNA OG STÓREFNILEGA UNGHESTA VERÐA Í POTTINUM. ENGIN NÚLL – AÐEINS KR. 25.000 HVER TOLLUR.
Rétt er að benda á að vert er að tryggja sér miða hið fyrsta þar sem oftar en ekki hefur selst upp á þennan magnaða viðburð!
Sjáumst í Sprettshöllinni næstkomandi laugardag!
Landsliðsnefnd LH