Opið Karlatölt Spretts verður haldið föstudaginn 27.mars í Sprettshöllinni.
Þrír flokkar verða í boði og er aldurstakmark 18 ár ( miðast við ungmennaflokk);
- Minna vanir (hægt tölt og fegurðartölt)
- Meira vanir (hægt tölt, hraðabreytingar og greitt tölt)
- Opinn flokkur (hægt tölt, hraðabreytingar og greitt tölt)
Aðeins er hægt að skrá í gegnum skráningakerfið www.sportfengur.com. Skráning hefst föstudaginn 20.mars og lýkur miðvikudaginn 25. mars kl. 20:00. Skráning pr. hest er 4000 kr. Leyfilegt er að skrá fleiri en einn hest.
Stórglæsileg verðlaun í boði, peningaverðlaun, folatollar ofl.
Hvetjum alla karla til þess að taka þátt í einu skemmtilegasta karlatölti landsins og hafa gaman saman.
Karlatöltsnefnd Spretts