Hestadagar í Reykjavík eru nú haldnir hátíðlegir. Á morgun laugardag verður hin árlega skrúðreið um höfuðborgina þar sem fjöldinn allur af hrossum og knöpum láta ljós sitt skína. Viljum við hvetja sem flesta Sprettara til að mæta fyrir hönd félagsins en allir eru velkomnir að taka þátt.
Mæting er kl: 12:00 við Vatnsmýrarveg, lagt verður af stað kl 13:00.
Leiðin er: Vatnsmýrarvegur, Njarðargata, Skólavörðustígur, Bankastræti, Austurstræti, Pósthússtræti, Kirkjustræti, Tjarnargata, Hljómskálagarður og Vatnsmýrarvegur.
Allar nánari upplýsingar vegna Sprettshópsins gefa Hermann í síma 8944546 og Arnhildur í síma 8911172