Hið árlega kórkvöld Sprettskórsins fer fram laugardaginn 21. mars í veislusal Spretts. Með Sprettskórnum syngja tveir gestakórar, Lóuþrælar úr V-Húnavatnssýslu og Grundartangakórinn. Húsið opnar kl 19:30, miðaverð 2.500 krónur og bar á staðnum.
Söngur og dans fram á nótt.
Hvetjum alla til að mæta og eiga gott kvöld.