Æskan og hesturinn er árlegur viðburður sem haldinn verður sunnudaginn 15.mars. Sprettur ætlar að sjálfsögðu að vera með atriði. Yngri knaparnir geta tekið þátt í búningaatriðinu sem er sameiginlegt atriði alla félaganna og verður auglýst betur síðar.
Öllum börnum og unglingum stendur til boða að taka þátt og viljum við fá skráningar á netfangið
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 8611172 fyrir föstudaginn 13. febrúar. Nafn og aldur barnsins þarf að koma fram í skráningunni og gott væri að láta símanúmer foreldris fylgja með.
Hlökkum til að sjá alla
Með kveðju
Æskulýðsnefndin