Hestadagar í Reykjavík er samvinnuverkefni LH, Höfuðborgarstofu, og hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu og verða haldnir dagana 4. – 7. apríl næstkomandi.
Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði þetta árið. Föstudaginn 5. apríl ætla hestamannafélögin Fákur, Hörður, Sóti, Sprettur og Sörli að bjóða gestum og gangandi í félögin sín. Valin hesthús verða opin fyrir áhugasama og hestateymingar verða í boði í reiðhöllum félaganna ásamt léttum veitingum. Öll hestamannafélögin verða með sömu dagskrá á sama tíma.
- 17:00 - 19:00. Opin hesthús (valin og merkt með blöðrum) Teymingar í reiðhöllum félaganna
- 18:00 Börn og unglingar sýna atriði, Kaffi, svali og kjötsúpa verður í boði í hverju félagi.
Eins og í fyrra verður farin skrúðreið á laugardeginum 6. apríl og að þessu sinni verður farinn hringur í miðbænum. Kl. 13:00-16:00 – Dagskrá í Húsdýragarðinum – teymt undir börnum, fræðsla um hestinn, heitjárning sýnd, byggingadómar. Hestar fléttaðir og fleira skemmtilegt. FRÍTT INN ALLAN DAGINN. Um kvöldið endum við svo á að horfa á flottustu töltara landsins á skautasvellinu í Laugardal: „Ístölt – þeir allra sterkustu".
Sunnudagurinn er tileinkaður æskunni. Sýningin Æskan og hesturinn er fjölskylduhátíð í Reiðhöllinni í Víðidal sem öll hestamannafélögin á stórhöfuðborgarsvæðinu standa að. Haldnar verða tvær sýningar á sunnudeginum 7.apríl. Sýning þessi hefur alltaf verið gríðarlega vinsæl og þar má sjá framtíðarknapa Íslands leika listir sínar með fákum sínum.
Dagskrá hestadaga má finna sjá hér að neðan og inn á www.lhhestar.is
Viðburður sem engin áhugamaður um íslenska hestinn ætti að missa af!
DagskráFimmtudagur 4. apríl
Kl. 16:00 – Setningarathöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur
Borgarstjóri Reykjavíkur kemur í hestvagni að ráðhúsinu ásamt fríðu föruneyti og setur hátíðina.
Allir velkomnir, léttar veitingar í boði.
Föstudagur 5. apríl
Hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu bjóða heim!
Föstudaginn 5. apríl ætla hestamannafélögin Fákur, Hörður, Sóti, Sprettur og Sörli að bjóða gestum og gangandi í félögin sín. Valin hesthús verða opin fyrir áhugasama og hestateymingar verða í boði í reiðhöllum félaganna ásamt léttum veitingum.
Öll hestamannafélögin verða með sömu dagskrá á sama tíma.
17:00 - 19:00
Opin hesthús (valin og merkt með blöðrum) Teymingar í reiðhöllum félaganna
18:00 Börn og unglingar sýna atriði
Kaffi, svali og kjötsúpa verður í boði í hverju félagi.
Laugardagur 6. apríl
Kl. 13:00-16:00 – Dagskrá í Húsdýragarðinum – teymt undir börnum, fræðsla um hestinn, heitjárning sýnd, byggingadómar. Hestar fléttaðir og fleira skemmtilegt.
FRÍTT INN ALLAN DAGINN
Kl. 13:00 – Skrúðreið frá BSÍ – ca. 150 hestar – BSÍ, upp á Skólavörðuholt, niður Skólavörðustíg, yfir Lækjargötu, Austurstræti, Pósthússtræti, Kirkjustræti og Tjarnargata að Ráðhúsi, áfram Tjarnargötu, í gegnum Hljómskálagarð, yfir Njarðargötu og aftur að BSÍ.
Kl. 20:00 – Ístölt þeirra allra sterkustu í Skautahöllinni í Laugardal
Sunnudagur 7. apríl
Æskan & hesturinn í reiðhöllinni í Víðidal kl. 13:00 og 16:00