Spennan eykst og nú styttist í eitt stærsta mót innanhúss hefst í Sprettshöllinni. Gluggar og Gler deildin - Áhugamannadeild Spretts hefst fimmtudaginn 5 febrúar kl. 18:00 með undirskrift styrktarsamnings við aðalstyrktaraðila mótsins Glugga og Gler.
Opnunarhátðin hefst klukkan 18:20 þar sem liðin verða kynnt. Keppni í fjórgangi hefst klukkan 19:00.
Frítt er inn fyrir áhorfendur meðan húsrúm leyfir.
Ljóst er að keppnin verður mjög spennandi en alls eru 42 knapar skráðir til leiks og spennan því mikil. Liðin hafa lagt mikið í undirbúning undanfarnar vikur, þjálfarar skólað liðin til og má segja að allt sé við suðupunkt hvað keppnisskap og spennu varðar.
Húsið opnar kl. 17:00 og einvala lið Sprettara mun sjá um að reiða fram veitingar í Veislusalnum okkar á góðu verði. Í boði verða m.a. eðalsúpa ala Sprettur, pizzur og margt annað. Ljóst er að enginn fer þyrstur eða svangur heim að kvöldi loknu
Við hvetjum alla áhugamenn um hestamennsku að taka kvöldið frá, koma í Sprettshöllina, njóta og horfa á spennandi keppni.
Glugga og Gler deildin - Áhugamannadeild Spretts er tímamóta viðburður fyrir hestamenn sem loksins er orðinn að veruleika.
Ráslistar verða birtir á morgun miðvikudag.
Hlökkum til að sjá ykkur öll.