Hinn árlegi þrauta- og leikjadagur unga fólksins fer fram í reiðhöll Spretts föstudaginn langa og hefst fjörið kl. 11.
Sett verður upp braut til að ríða í gegnum og allir knapar hvattir til að koma í grímubúningum. Veitt verða verðlaun fyrir flottustu búningana og besta tímann í brautinni. Allir fá páskaegg og svo verða grillaðar pylsur á eftir.
Hvetjum Sprettara til að mæta með börn og barnabörn á þennan skemmtilega viðburð sem alltaf nýtur vinsælda!
Æskulýðsnefnd