Ráðstefnan, Ungt fólk og lýðræði 2015 fer fram dagana 25.-27. mars á Hótel Stykkishólmi. Yfirskrift ráðstefnunnar er; Margur verður að aurum api - réttindi og skyldur ungs fólks á vinnumarkaði. Ungmennaráð UMFÍ á veg og vanda að ráðstefnunni og hefur þegar hafið undirbúning að fullum krafti.
Það er einlæg ósk ráðsins að öll sveitarfélög á landinu og félagasamtök sem hafa ungmennaráð á sínum vegum sendi fulltrúa til ráðstefnunnar.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna berast í janúar.
Fyrir hönd Ungmennaráðs UMFÍ
Sabína Steinunn Halldórsdóttir
Landsfulltrúi