Aðalfundur Hrossaræktarfélags Spretts og opinn kynningarfundur á nýrri reglugerð um velferð hrossa. Fundurinn verður haldinn í Sprettshöllinni þann 11. desember nk. og hefst kl. 20:00.
Dagskrá:Hefðbundin aðalfundarstörf.
Kynnt kjör ræktunarmanns Hrossaræktarfélags Spretts.
Verðlaun veitt fyrir efstu hross félgasmanna; stóðhestar og hryssur eftir aldursflokkum og myndband sýnt af þeim.
Fræðsluerindi: dr. Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Mast kynnir nýsetta reglugerð um velferð hrossa.
Fyrirspurnir og umræður.
Allir sem áhugasamir eru um hrossarækt og velferð hrossa eru hvattir til að mæta. Í þessari glænýju reglugerð eru fjölmörg nýmæli sem vert er að þekkja og ekki hefur verið haldinn kynningarfundur á reglugerðinni fyrr hér á höfuðborgarsvæðinu.
Stjórn Hrossaræktarfélags Spretts