Aðventukvöld Brokkkórsins verður haldið í Seljakirkju fimmtudaginn 11. Desember kl 20. Kórinn flytur jólalög undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar og nýkjörinn formaður landssambands hestamanna, Lárus Ástmar Hannesson, flytur ávarp.
Verð er kr. 1.500 krónur en frítt er fyrir 12 ára og yngri. Boðið verður upp á heitt súkkulaði og vöfflur. Miðasala er við innganginn og eingöngu hægt að greiða með peningum. Húsið opnar 19:30.