Nú er umhverfisnefnd Spretts farin að vinna í málum fyrir félagið. Eins og alltaf á vorin birtist ýmislegt rusl og drasl undan snjónum. Því vill nefndin hvetja félagsmenn til að taka höndum saman og hreinsa til drasl og rusl í kringum húsin og í nánasta umhverfi. Einnig vill nefndin hvetja þá aðila sem eru í framkvæmdum á nýja svæðinu að huga að umgengninni og umhverfinu því betri umgengni á verkstað er aukið tilliti til annarra félagsmanna sem ríða um svæðið.
Með samvinnu gerum við svæðið okkar enn glæsilegra.