Sl. laugardag og sunnudag voru A-úrslit í öllum greinum og áttu Sprettarar fulltrúa í mörgum flokkum. Glæsilegur árangur Þórarins Ragnarssonar og Spuna frá Vesturkoti í A-flokki hefur ekki farið framhjá fólki, flottir Sprettarar þar á ferð.
Í ungmennaflokki stóðu þær Ellen María Gunnarsdóttir og Lyfting frá Djúpadal og María Gyða Pétursdóttir og Rauður frá Syðri-Löngumýri sig frábærlega í A-úrslitum María Gyða endaði í 3.ja sæti með 8,7 í einkunn og Ellen María endaði í 4.sæti með 8,69, frábær árangur það.
Í unglingaflokk stóðu þau Hafþór Hreiðar Birgisson og Ljóska frá Syðsta-Ósi sig vel í A-úrslitum, enduðu þau í 5.sæti með 8,65
Til hamingju allir Sprettarar með frábæran árangur á Landsmótinu, falleg og fagleg reiðmennska til fyrirmyndar hjá ykkur öllum.