Sprettur ætlar að bjóða félagsmönnum sínum í grillveislu á föstudagskvöldið 4.7. Grillið verður við félagstjaldið sem verður á tjaldsvæðinu. Hvetjum alla Sprettara til að mæta og eiga góða stund saman.
Sprettur, Sörli, Hörður og Fákur munu tjalda stóru veislutjaldi á tjaldsvæðinu sem verður einskonar félagsmistöð félaganna, þar getur fólk sest niður og spjallað eða fundað ef þess þarf, borð og bekkir verða í tjaldinu fyrir ca 50 manns. Rétt hjá eru félagstjaldsvæðin og hefur Sprettur eins og áður hefur komið fram nú þegar flaggað fána sínum þar.