Fimmtudaginn 26.6 kl 10:00 verður brottfararfundur fyrir keppnisfólk Spretts í veislusal reiðhallarinnar.
Á fundinum verður farið yfir beitaraðstöðu á Gaddstaðaflötum, aðstöðu í Árbæjarhjáleigu fyrir keppendur yngri flokka og beitar aðstöðu eftir forkeppnir.
Keppendur geta keypt Sprettsmerki fyrir keppnisjakka á 900.kr.
Farið verður yfir æfingatíma félagsins á Hellu, skipulag vegna hópreiðar, félagsgrill ofl ofl
Mikilvægt að sem flestir keppendur og aðstandendur þeirra mæti á fundinn og geti þá nálgast þær upplýsingar sem fólki þyrstir um að fá að vita fyrir Landsmót.
Landsmótsnefnd Spretts