Nú fara æfingar að hefjast fyrir Sprettslandsmótsfara (börn, unglinga og ungmenni).
Fyrsta æfing verður fimmtudaginn 19. júní. Fyrsti tíminn verður kl 18:00
Fyrirkomulag verður í formi einkakennslu, þ.e. 15-20 min á hvern og einn. Ragnheiður Samúelsdóttir, Erla Guðný Gylfadóttir og Jón Ólafur Guðmundsson munu sjá um æfingarnar.
Við hvetjum alla landsmótsfara í yngri flokkum að nýta sér þessar æfingar og leiðsögn.
Þeir sem vilja nýta sér þetta eru beðnir að hafa samband við Lilju Sig.
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða 663-2603.
Þeir krakkar sem voru á keppnisnámskeiðinu vor, fram að úrtöku og hafa nú þegar látið vita að þau ætli að nýta sér þessa aðstoð þurfa ekki að láta vita aftur núna.
Tíma og nafnaröð verður birt á miðvikudag.
Landsmótsnefndin.