Fyrir skömmu var borið á ákveðin svæði á Sprettssvæðinu og að þeim sökum getur verið varhugavert að beita hrossum á grasið. Þessi svæði eru flatirnar hjá völlunum, básaskarðið, rjúpnahæð og í kringum Magnúsarlund. Vinsamlegast hafið samband við framkvæmdastjóra Spretts (Magga Ben, s: 893-3600) áður en sett eru upp girðingar/beitihólf til að fá staðfest að svæðið sé öruggt fyrir hrossin.
Í náinni framtíði mun vera sett upp varanleg beitihólf fyrir félagsmenn til að leigja en það verður kynnt þegar nær dregur.