Nú hefur Metamótsnefndin hafið störf sín og er undirbúningur kominn á fullt skrið. Ljóst er að mótið verður með glæsilegasta móti, eins og verið hefur. Gaman er að segja frá því að ákveðið hefur verið að bæta við nýrri keppnisgrein sem kallast Kappreiðarstökk en nánari útfærslur á þessu verður tilkynnt þegar nær dregur.
Því má með sanni segja að mótið verði fjölbreitt og eitthvað fyrir alla.
Þessi skemmtilega mynd frá Landsmóti er fengin að láni há Hófapressunni.