Eins og flestir vita hélt hestamannfélagið Sprettur stórglæsileg íþróttamót um síðustu helgi. Til þess að geta haldið svona veglegt mót þarf mikinn mannskap í hinn ýmsu störf. Í þakklætisskyni langar stjórninni að bjóða öllu því ágæta fólki sem kom og aðstoðaði mótanefndina á mótinu í grill á vegum stjórnarinnar n.k. fimmtudag þann 22 maí kl. 18:30 við nýju reiðhöllina.
Það er mikilvægt fyrir félagið vera með duglega og hjálpsama félagsmenn innanborðs sem eru tilbúnir að leggja hönd á plóg við að gera hlutina mögulega.